|
Description:
|
|
Siðasta föstudag kom út lagið Tárin falla hægt með Bubba Morthens og Auðni Lútherssyni, sem kemur fram undir listamannsnafninu Auður. Þetta er fyrsta lagið sem Auður sendir frá sér eftir að hann dró sig í hlé um mitt síðasta ár í kjölfar ásakana um kynferðisofbeldi. Fjölda tónleika var aflýst, hann dró sig úr hlutverkum í leikhúsi og sjónvarpsþáttum, og meira að segja tónlist sem hann hafði gefið út var tekin út af streymisveitum. Það var talað um að honum hafi verið slaufað. Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi fjallar um nýja plötu Ara Árelíusar, Hiatus Terræ. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir rýnir í þættina Piparjónkan. |