|
Description:
|
|
Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Little Women og Portrait of a Lady on Fire. Í tilefni að sýningu nýjustu kvikmyndar Romans Polanski, J'accuse, eða Ég ákæri, sem sýnd er á franskri kvikmyndahátíð rifjum við upp eitt frægast dómsmál sögunnar, Dreyfus-málið, sem tvístraði frönsku samfélagi um aldamóin 1900. Liðsforingi í franska hernum, gyðingurinn Alfreð Dreyfus var dæmdur fyrir njósnir og landráð en reyndist saklaus. Og við kynnum okkur upplýsingar sem varpa nýju ljósi á sögu titrarans. |