|
Description:
|
|
Textar í kennslubókum fyrir tungumálanema eru misskemmtilegir. Þessu kynntist Karítas Hrundar Pálsdóttir þegar hún lærði japönsku þar í landi fyri rnokkrum árum. Nú hefur hún sent frá sér örsagnasafnið Árstíðir, en bókin er sérstaklega hugsuð fyrir lesendur sem eru að læra íslensku sem annað mál. Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur þriðjudagspistil. að þessu sinni fjallar hann um fortíðina, minningar og skilaboðin um að „halda áfram“. Skilaboð sem hann er ekki viss um að hafi verið gagnleg fyrir þebversku drottninguna Níóbe eftir að börn hennar voru myrt af guðunum. Um þessar mundir má heyra kór táninga flytja söngvasafn í Tjarnarbíói undir heitinu The Teenage Songbook of Love and Sex eða söngbók táningsins um ást og kynlíf. Söngvarnir eru samdir af unglingunum sjálfum um þeirra eigin reynslu af rómantískum samböndum og kynlífi, fjalla um ástina, forvitni, misnotkun, að koma út úr skápnum, fyrstu kynlífsupplifunina og ástarsorgina. Lestin lítur við á frumsýningu hjá hópnum og skyggnist inn í heim unglingsins. |