|
Description:
|
|
MeToo-bylgjan sem hefur skekið heiminn undanfarin ár hefur loksins náð inn í franskan bókmenntaheim með nýrri bók "Le Consentement" eða Samþykkið. Þar lýsir Vanessu Springora misnotkun sem hún varð fyrir af hendi hins virta rithöfundar Gabriels Matzneff þegar hún var aðeins 14 ára gömul. Matzneff hefur ekki farið í felur með kynferðislegan áhuga sinn á ungmennum í gegnum tíðina en sjaldan verið gagnrýndur. Í dag eru 30 ár liðin frá útgáfu lags MC Hammer, „Can't Touch This“. Ósnertanlegar danshreyfingar hamarsins í tónlistarmyndbandi lagsins hafa verið uppspretta gleði allar götur síðan og eins er dægurmenningin þrungin af vísunum í texta þess. Samt er það eini smellur MC Hammer á heimsvísu. Við lítum á lagið og feril hamarsins í Lestinni í dag. Þá rennir Lestin yfir tilnefningar til Óskarsverðlauna sem afhjúpaðar voru í dag og Tómas Ævar Ólafsson flytur fyrsta pistilinn í þriggja pistla seríu um veggjakrot. |