|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Hauk Ingvarsson, rithöfund og bókmenntafræðing, um nýútkomna sjálfsævisögu breska tónlistarmannsins Bretts Andersons, Coal Dark Mornings. Anderson er forsöngvari í hljómsveitinni Suede sem sló í gegn í byrjun níunda áratugarins og hafði mikil áhrif og sjálfsævisaga hans þykir merkileg fyrir margra hluta sakir. Lesstofan gaf nýverið út bók um íslenskar rúnir, Runes: The Icelandic Book of FUÞARK. Saga og merking rúnanna er þar rakin en hver rún einnig teiknuð upp með samræmdu letri í takt við nútímaleturhönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska rúnastafrófið er sett fram heildstætt. Teresa Dröfn Freysdóttir, doktorsnemi í miðaldafræðum, skrifar texta bókarinnar, og Siggi Odds, grafískur hönnuður, hannar rúnakerfin. Þau segja nánar frá bókinni í þætti dagsins. Á dögunum var endurútgefin ein besta plata rappsögunnar, tíunda áratugarins og þótt víðar væri flokkað. Það er aldarfjórðungur síðan fiðrildið, maríubjallan og lirfan teygðu sig í nýja afsönnun á tíma og rúmi. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í tímamótaverkið Reachin' (A New Refutation of Time and Space) með djassrappsveitinni Digable Planets í ferðalagi dagsins. Heiða Jóhannsdóttir fjallar um sjónvarpsmyndina Mannasiði eftir Maríu Reyndal sem RUV sýndi um páska. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |