|
Description:
|
|
Efni Lestarinnar í dag: Um helgina var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni ný heimildamynd um morðið á Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í Ródesíu árið 1961. Á meðal þess sem fram kemur í myndinni er að dauðasveit frá Suður-Afríku hafi vísvitandi dreift HIV-smiti í sunnanverðri Afríku á níunda og tíunda áratugnum, þetta fullyrðir fyrrverandi yfirmaður í sveitinni. Heill her rannsóknarblaðamanna hefur undanfarin sex ár unnið að myndinni undir forystu danska leikstjórans Mads Brügger og sænska rannsóknarblaðamannsins Göran Björkdahl. Í Lestinni í dag verður rætt við Viðar Hákon Gíslason, hljóðmann, sem vann að gerð þessarar athyglisverðu myndar. „Mesti óvinur mannkyns, hórsótt eða eyðni?" er yfirskrift fyrirlesturs Ástu Kristínar Benediktsdóttur íslenskufræðings og Hafdísar Erlu Hafsteinsdóttur sagnfræðings. Í Lestinni í dag ræða þær hvernig orðræða um kynvillu eða samkynhneigð sem smitandi, erlenda úrkynjun, birtist í umræðum um HIV og eyðni og hvernig hún mótaði baráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks fyrir lagalegu og félagslegu jafnrétti. Í pistli sínum í dag veltir Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér fortíðarþrá og Stjörnustríði. Væntingar aðdáenda til nýrra stjörnustríðsmynda byggja á ljúfsárri fortíðarþrá og þar af leiðandi er nánast ómögulegt að koma til móts við þær. Bankað verður uppá hjá danska heimspekingnum Søren Kierkegaard í viðleitni til að skilja þetta tilfinningaþrungna ástand Stjörnustríðs-sagnaheimsins. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um landamæri. Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson |