Search

Home > Lestin > Pólitík í Söngvakeppninni, hljóðmengun, Albert Finney
Podcast: Lestin
Episode:

Pólitík í Söngvakeppninni, hljóðmengun, Albert Finney

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2019-02-12 11:03:00
Description: Efni Lestarinnar í dag: Pólitískar stimpingar eru nær óumflýjanlegar þegar fulltrúar 42 þjóðríkja koma saman enda er yfirleitt eitthvert hitamál á borðinu í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Réttindi hinsegin fólks, átök á Krímsskaga og þjóðarmorð eru allt dæmi um málefni sem sett hafa svip sinn á keppnir fortíðar og eins þykir mörgum mikið fara fyrir frændhyglinni í kosningunum um besta lagið. Í ár er pólitíkin komin til Íslands jafnvel áður en sjálf aðalkeppnin hefst. Lagið "Hatrið mun sigra" er komið í lokaumferð Söngvakeppni sjónvarpsins en það vísar í deilur Ísraela og Palestínumanna. Í Lestinni í dag er rætt við sérfræðinga FÁSES - Félag áhugamanna um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva - um pólitík í söngvakeppninni og það hvort fleiri mótmælalög finnist í erlendum undankeppnum þetta árið. Í pistli sínum í dag hlustar Tómas Ævar Ólafsson á Reykjavíkurborg og veltir því fyrir sér hvort finna megi þögnina sjálfa innan borgarmúranna. Er þagnarvænt í Reykjavík eða er hljóðmengunin búin að leggja höfuðborgina undir sig, spyr Tómas í dag. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og enska leikarans Alberts Finney verður minnst, en hann andaðist í síðustu viku, 82ja ára gamall. Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
Total Play: 0

Users also like

100+ Episodes
The Snorri B .. 200+     10+

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Samfélagið 10+     1
600+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6