|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Arnar Freyr Kristinsson listfræði- og ritlistarnemi tilkynningu frá Stúdentafélagi Reykjavíkur. Félagið var stofnað árið 1871 af nokkrum stúdentum Prestaskólans og Læknaskólans og var afar virkt í þjóðmálaumræðu og beitti sér fyrir mörgum framfaramálum, svo sem lagningu síma, fánamálinu, samgöngumálum og fullveldi Íslands. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. |