|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Þorvaldur Sigurbjörn Helgason meistaranemi úr bréfi sem Jón Guðmundsson ríkisendurskoðandi og síðar skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu skrifaði móðurbróður sínum Steingrími Jónssyni, alþingismanni og sýslumanni Þingeyinga í janúar 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |