|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Flosi Jón Ófeigsson hótelstjóri á Hótel Eyvindará og hóptímakennari í Reebok úr bréfi Jónasar Jónssonar frá Hriflu til Benedikts Jónssonar á Auðnum. Þegar bréfið var ritað var Jónas kennari við Kennaraskólann í Reykjavík. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |