|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Hrönn Ingólfsdóttir sölufulltrúi og nemi til fasteigna- og skipasölu úr gamanvísu eftir Gunnþórunni Halldórsdóttur leikkonu en hún samdi fjölmargar slíkar og flutti á samkomum í Reykjavík. Gunnþórunn var einn af stofnendum Leikfélags Reykjavíkur og með fyrstu leikurum þess. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |