Search

Home > R1918 > Það vantar tilfinnanlega mæður og annað kvenfólk
Podcast: R1918
Episode:

Það vantar tilfinnanlega mæður og annað kvenfólk

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2018-03-14 07:03:00
Description: Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sólveig Gabriela Brodman, 10 ára nemandi í Laugarnesskóla, úr grein sem birtist í Morgunblaðinu 20. nóvember 1918. Greinin fjallar um börnin sem dvöldu á Barnahælinu sem var sett upp í Spænsku veikinni í Barnaskóla Reykjavíkur og er jafnframt beiðni um aðstoð við þau. Enginn er skrifaður fyrir greininni en Vilhjálmur Finsen var ritstjóri Morgunblaðsins á þessum tíma. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Total Play: 0