|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sigurður Ingólfsson skáld og doktor í frönskum bókmenntum úr bréfi Guðmundar Helgasonar prests og síðar búnaðarmálastjóra í Reykjavík til bróður síns Ágústs Helgasonar, bónda, alþingismanns og hreppstjóra í Grímsnesi og Birtingaholti. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |