|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Kristín G. Ísfeld starfaði við kennslu í yfir 40 ár í Hvassaleitisskóla en hún hefur nú látið af störfum vegna aldurs. Hún býr í Seljahverfi í Breiðholti og hefur áhuga á að spila bridge og stunda útivist, ekki síst hjólreiðar. Í þessum þætti les hún tilkynningu úr Morgunblaðinu frá 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |