|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ása Björk Snorradóttir myndmenntakennari og leiðsögumaður úr bréfi sem Kristrún Eyjólfsdóttir, húsfreyja í Gröf, sendi syni sínum, Steindóri Björnssyni leikfimikennara og efnisverði Landsímans árið 1918. Ásta sem talað er um í bréfinu er Þórunn Ástríður Björnsdóttir, sem var nemandi við Kvennaskólann frá hausti 1918 og bjó með systrum sínum að Tjarnargötu 8b. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |