|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Gunnhildur Sveinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og kennari, hún starfar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um þessar mundir. Í þessum þætti les hún úr bréfi Guðbjargar Guðmundsdóttur til Kristrúnar Eyjólfsdóttur. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |