|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Bryndís Jóhannsdóttir er þriðju kynslóðar Reykvíkingur. Hún býr núna á Öldugötunni með sínu fólki og starfar í Háskóla Íslands. Í þessum þætti les hún úr grein eftir Guðnýju Jónsdóttur Ottesen, húsfreyju og garðyrkjumann sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |