|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Í þessum þætti les Orri Elíasen, 11 ára nemandi í 6. bekk Laugarnesskóla og áhugamaður um sirkuslistir, körfubolta og fótbolta stundatöflu Erlings Hjaltested, 11 ára nemanda í Barnaskóla Reykjavíkur veturinn 1918-19, en stundataflan er úr safni föður hans, Bjarna Hjaltesed. Bjarni hafði verið aðstoðarprestur við Dómkirkjuna en veturinn sem um ræðir var hann kennari við Barnaskóla Reykjavíkur.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. |