|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Í þessum þætti les Gígja Hólmgeirsdóttir, sviðslistamaður og nemi í hagnýtri menningarmiðlun úr bréfi Fjólu Stefánsdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Fjóla var forstöðumaður húsmæðraskólans Ósk á Ísafirði 1912-1917 en Halldóra var skólastjóri barnaskólans á Akureyri. Hún prjónaði flíkur af kappi ásamt öðrum sjálfboðaliðum, auk þess sem hún safnaði klæðum til að gefa efnalitlum börnum árið 1918.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. |