|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Tómas Oddur Guðnason er 11 ára nemandi í Melaskóla. Í þessum þætti les hann úr grein sem birtist í Morgunblaðinu 29. nóvember 1918 og fjallaði um Barnahælið sem sett var upp í Barnaskóla Reykjavíkur í spænsku veikinni. Enginn er skrifaður fyrir greininni en ritstjóri blaðsins á þessum tíma var Vilhjálmur Finsen. Þess má geta að John Fenger sem minnst er á í greininni var heildsali og stórkaupsmaður og var jafnframt ráðsmaður á hælinu.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |