|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Í þessum þætti les Hrönn Ingólfsdóttir sölufulltrúi og nemi til fasteigna- og skipasölu úr gamanvísu eftir Gunnþórunni Halldórsdóttur leikkonu en hún samdi fjölmargar slíkar og flutti á samkomum í Reykjavík. Gunnþórunn var einn af stofnendum Leikfélags Reykjavíkur og með fyrstu leikurum þess.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |