|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Í þessum þætti les Sigrún Tinna Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur og fræðslustjóri AFS á Íslandi, úr bréfi Jóninnu Pétursdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Jóninna starfaði við ráðsmennsku, matreiðslu og saumaskap en hún vann á saumaverkstæði Steinunnar Briem í Reykjavík árið 1918. Hún útskrifaðist úr Kvennaskólanum á Blönduósi árið 1921 og kenndi síðar við skólann.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |