|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Sverrir Arnórsson stundar nám í sellóleik við Menntaskóla í tónlist. Hér les hann úr bréfi sem Lárus Jóhannesson skrifaði foreldrum sínum, Jóhannesi Jóhannessyni og Jósefínu Antoníu Lárusdóttur. Lárus lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917 og lærði lögfræði í Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla. Hann var þingmaður Seyðfirðinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 1942-1956.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |