Search

Home > R1918 > Frá dómkirkjunni ómuðu líkhringingarnar daglega
Podcast: R1918
Episode:

Frá dómkirkjunni ómuðu líkhringingarnar daglega

Category: Society & Culture
Duration: 00:01:30
Publish Date: 2018-04-25 07:03:00
Description: Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessu þætti les Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður úr endurminningum Árna Thorsteinson tónskálds og ljósmyndara sem gefnar voru út árið 1955. Árið 1918 var Árni 48 ára og minnist hann spænsku veikinnar í endurminningum sínum. Þá var hann búsettur á Vesturgötu 41. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Total Play: 0