|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Sólrún Jensdóttir sagnfræðingur var um árabil skrifstofustjóri í mennta-og menningarmálaráðuneytinu en hefur einnig starfað sem blaðamaður og kennari. Hún hefur búið í Reykjavík frá fæðingu, ef frá eru talin 6 ár við nám og störf í Bretlandi og Bandaríkjunum. Í þessum þætti les hún tilkynningu úr dagblaðinu Vísi sem birtist 4. apríl 1918.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |