|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Ingunn Sif Isorena Þórðardóttir er 12 ára nemandi í Kársnesskóla. Hún stundar jafnframt blokkflautunám í Tónlistarskóla Kópavogs og æfir fótbolta með Breiðabliki. Í þessum þætti les hún tilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu í apríl 1918.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |