|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Ingunn Jónsdóttir er safnafræðingur og starfar sem sviðsstjóri miðlunar á Þjóðminjasafni Íslands. Í þessum þætti les hún úr bréfi sem Guðrún Lárusdóttir skrifaði móður sinni Kirstínu Katrínu Pétursdóttur Guðjohnsen í maí 1918. Guðrún var rithöfundur og bæjarfulltrúi í Reykjavík og varð síðar þingkona. Hún var önnur íslenska konan sem kosin var á þing.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |