|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Bryndís Jóhannsdóttir er þriðju kynslóðar Reykvíkingur. Hún býr núna á Öldugötunni með sínu fólki og starfar í Háskóla Íslands. Í þessum þætti les hún úr grein eftir Guðnýju Jónsdóttur Ottesen, húsfreyju og garðyrkjumann sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar 1918.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |