|
Description:
|
|
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári.
Guðmundur Viðarsson er menntaður hljóðtæknifræðingur, heimspekingur og menningarmiðlari, ásamt því að vera með kennsluréttindi í framhaldsskólum með heimspeki sem sérgrein. Í þessum þætti les hann úr fundarboði sem Björn M. Ólsen prófessor og fyrsti rektor Háskóla Íslands undirritar fyrir hönd Hins Íslenska Bókmenntafélags.
R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV.
Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. |