Search

Home > Laugardagsmorgnar > 18. Vitaverðirnir á Flannan eyjum
Podcast: Laugardagsmorgnar
Episode:

18. Vitaverðirnir á Flannan eyjum

Category: Arts
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2020-01-20 02:30:00
Description: Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900. Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?
Total Play: 0