|
Description:
|
|
Já, lag dagsins var ekkert annað en dillilagið Diskó friskó. Felix Bergsson ræddi við Stefán S Stefánsson um lagið sem hljómsveitin Ljósin í bænum sendu frá sér á sínum tíma.
Það hafa flestir reynt að herma eftir öðrum en það er ekki öllum gefið að gera það vel. Jóhannes eftirherma Kristjánsson er einn þeirra betri í faginu og heldur hann um þessar mundir upp á 40 ára leikafmæli sitt. Við fengum Jóhannes auðvitað til að herma eftir hinum og þessum.
Allir ættu að kannast við verkefni Á allra vörum en hvaða risi er þetta? Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir ræddi við okkur meðal annars um gerð auglýsingarinnar og mikilvægi þess að vel takist til í söfnunni.
Getraunin var svo á sínum stað ásamt leiknum okkar Heima er best. |