Search

Home > Fotbolti.net > Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2025-12-21 21:03:00
Description: Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinnar unnu öll. Manchester City er farið að líta ógnvænlega út á meðan Arsenal er að harka út sigra. Leny Yoro átti þá erfiðan dag á skrifstofunni gegn Morgan Rogers. Snert er á öllum leikjum helgarinnar en við óskum ykkur, hlustendum góðir, gleðilegra jóla.
Total Play: 0