Search

Home > Fotbolti.net > Og allt í einu er Gylfi kominn í Víking
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Og allt í einu er Gylfi kominn í Víking

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2025-02-18 16:16:00
Description: Það voru risastór tíðindi í íslenskum fótbolta í dag þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skipti frá Val í Víking. Kaupverðið er um 20 milljónir króna. Víkingur og Breiðablik lögðu fram tilboð í Gylfa sem voru samþykkt, en Víkingur hafði betur í baráttunni. Það myndaðist ákveðin drasmatík í kringum þessi skipti en formaður Vals hefur sakað Gylfa um vanvirðingu gagnvart liðsfélögum sínum og félaginu. Þessar fréttir auka spenninginn fyrir Bestu deildina sem hefst í byrjun apríl. Guðmundur Aðalsteinn, Valur Gunnarsson og Víkingurinn Tómas Guðmundsson fóru yfir þessar risastóru fréttir í stuttu hlaðvarpi í dag en hægt er að hlusta á það í spilaranum hér að ofan og í hlaðvarpsveitum.
Total Play: 0