Search

Home > Fotbolti.net > Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2024-06-06 15:30:00
Description: Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira. Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru báðar að finna sig vel í öflugu umhverfi á Hlíðarenda.
Total Play: 0