Search

Home > Fotbolti.net > Ungstirnin - Gjöfin frá Nígeríu og ítalskur Messi
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Ungstirnin - Gjöfin frá Nígeríu og ítalskur Messi

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-09-04 11:44:00
Description: Þáttur númer 43 af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttarstjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Bradley Barcola (2002) sem var nýlega keyptur frá Lyon til PSG á 45 milljónir evra. Einnig er kynntur til leiks Gift Orban (2002) en hann leikur fyrir Gent í Belgíu - sem Blikar munu mæta í Sambandsdeildinni - en Orban er búinn að vera gjörsamlega á eldi í Belgíu. Simone Pafundi (2006) er einnig kynntur til leiks en hann er yngsti A-landsliðsmaður Ítala í yfir 100 ár og leikur hann fyrir Udinese og minnir mikið á Lionel Messi oft á tíðum. Í þættinum er farið yfir uppáhalds félagsskipti Ungstirna sem áttu sér stað í sumar, 15 uppáhalds Ungstirni utan efstu 5 deilda Evrópu, Skandinavíuhornið góða, Kristian Hlynsson að gera góða hluti með Ajax og svo margt margt fleira.
Total Play: 0