Search

Home > Fotbolti.net > Landsliðsgluggi sem fær falleinkunn þrátt fyrir stærsta sigur sögunnar
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Landsliðsgluggi sem fær falleinkunn þrátt fyrir stærsta sigur sögunnar

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-03-27 23:15:00
Description: Íþróttafréttamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, var í yfirvinnu á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Hann ræddi ekki bara um HK því hann tók líka landsliðsumræðu með Guðmundi Aðalsteini og Sæbirni Steinke. Íslenska karlalandsliðið var að klára sinn fyrsta glugga í undankeppni EM 2024. Liðið vann í gær stærsta sigur sinn í keppnisleik frá uppahafi er liðið vann 7-0 sigur á Liechtenstein. Þrátt fyrir það fær glugginn falleinkunn þar sem liðið féll harkalega á stóra prófinu gegn Bosníu. Strákarnir ræða um leikinn í Liechtenstein og gluggann í heild sinni í þessum þætti.
Total Play: 0