|
Description:
|
|
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
Í þessum fjórtánda þætti er fjallað um Tiago Tomás (Sporting), Noni Madueke (PSV) og Fransisco Trincão (Barcelona)
Drengirnir búa báðir til lið ársins hingað til á tímabilinu einungis skipað ungstirnum.
Jónatan Ingi Jónsson og Hörður Ingi Gunnarsson, leikmenn FH og U-21 árs landsliðs Íslands, eru gestir þáttarins. Drengirnir takast á spurningakeppni og er farið yfir það sem hefur verið í gangi á ferlinum hingað til. |